KELAN TALAR
06.10.2006 19:21:55 / rakelgudn

Ekki að standa mig í þessu Bloggi

vá hvað ég er ekki alveg að standa mig að blogga....bara búið að vera eitthvað nóg annað að gera.  Maður finnur líka hvað maður þarf að gera mikið heima hjá sér þegar maður er fluttur að heiman, kaupa í matinn, þvo, laga til og þrífa....  ekkert elsku mamma neitt....já það fylgja þessu ýmsir kostir og gallar.  En við erum samt mjög sátt að vera flutt og fínasta íbúð bara :) . En hvað er málið með þessa helvítis MSN vírusa ...talvan fór í tómt rugl og það var ekki gaman að fara með hana í viðgerð, þurfti að setja nýja vírusvörn í hana og taka gögnin úr henni og setja á disk og kann ekki einu sinni að setja gögnin aftur í tölvuna :|:|.

 Nóg að gera í fimleikunum þar sem ég er að þjálfa 8 tíma á viku og ákvað svo að skella mér á fimleikaæfingu í síðustu viku og er búin að fara á 4 æfingar núna held ég og finnst það bara geggt gaman eftir 3 ára pásu...8|.  Er núna upp í Akademíu sem húsvörður, jei svaka stuð EKKERT að gerast hérna núna en samt fínasta vinna, get lært í vinnunni minni og fæ borgað fyrir að hreyfa mig :D

Nóg í bili

Rakel


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 18:07:00 / rakelgudn

komin aftur!!

Sælt veri fólkið!!
Verð að viðurkenna það að ég hef verið Mjög slöpp við það að blogga í sumar , kannski því ég hafði nóg annað að gera og ég og Gulli fluttum á krossmóan í sumar og erum rétt að fara fá netið núna í vikunni, hafði ekkert svo mikil not fyrir það í sumar.  Skólinn kominn á fulla ferð :$ og er núna að vinna upp í akademíu að passa húsnæðið.  Er annars ennþá að þjálfa.  Það sem ég vill koma á framfæri er að við akademlíngar erum með þríþraut og hvet ég alla til að vera með hvort sem það er í einstaklings eða liðakeppni. 

Lesið um þríþrautina á  www.blog.central.is/akademian

Kelan




» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 20:21:30 / rakelgudn

Sælar!!!

já ég hef ekki gefið mér tíma að blogga frá því ég byrjaði að vinna á mánudaginn, já ég er að vinna við að mála, er það ekki strákavinna spyrja sumir??hvað er strákavinna?? Jú reyndar er ég eina stelpan þarna :P og ég veð í strákum þarna,bahaha og Gulli mun líka byrja vinna þarna um mánamótin ;) enda er ekkert varið í strákana sem vinna þarna sem ég hef séð í vikunni. Já Börkur vildi endilega fá okkur til að vinna hjá sér í sumar og ég held þetta verði bara fínt sumar 8).  Held bara ég sé komin með sinaskeiðabólgu eftir alla þessa penslavinnu, sem er eðlilegt þegar maður er ekki vanur að vera mála...var reyndar bara til kl 12 í dag  en er annars til allavega 17:00, 8) mjög gott að hætta kl 12:00 í dag enda skítakuldi úti, var í ullapeysu og peysu yfir :!: helvítis rok hérna í keflavík...búið að fresta bláa lons mótinu sem átti að vera á morgun :D glæsilegt það, því ég ætlaði í það en er að vinna um helgina og líklegast síðasta helgin mín í sumar...Sportbúðin er að hætta, jahérna:$ ég vissi svosem að það gæti gerst, það var eitthvað búið að tala um það.  Svo er slútt í fimleikunum á morgun þar sem foreldrar mega koma með á æfinguna :D það verður gaman að sjá hvernig það fer. Fór annars í dag upp í Akademíu þar sem fyrsta skóflustungan var tekin að nýjum nemendaíbúðum 8) og sýnt okkur íbúðirnar sem eru tilbúnar, ég og Gulli skoðuðum þetta og erum búin að sækja um;)  og það eru víst biðlistar, en vonum það besta :S.

 Jæja það var horft á silvíu nótt í gær og já get ekki sagt annað en svekkelsi, hefur fólk engan húmor?! greinilega ekki...greyjjið Silvía með maskara niður á háls vegna tára eftir úrslitin....eurovison sökkar feitt!!!!!

Nóg í bili

Kelan

    


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 18:29:05 / rakelgudn

Prófin búin!!!

Júhú ég er búin í prófunum eftir mikla pínu að þurfa vera læra í þessu góða veðri...!!! og kom sjálfum mér satt að segja á óvart hvað mér gekk vel í þeim...8)8) núna er bara bíða spennt eftir einkunnunum....

Fór að þjálfa í dag og hikaði ekki við það að taka stelpurnar út í upphitun.

Fer annars að vinna á mánudaginn hjá BG Málaraverktökum....;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 10:48:42 / rakelgudn

Hlé á bloggi!!!

jæja þar sem ég er á fullu í prófundirbúningi og hef verið það frá því á fim í síðustu viku þá ætla ég ekki að blogga fyrr en 10.maí en þá er ég búin í prófunum.

Rakel


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 15:14:22 / rakelgudn

Páskafrí

Sælar!!!

já kelan er komin í páskafrí-á mánudaginn...:lol: fór í próf í lífeðlisfræði á mánudaginn og skilaði vinnubók í líkams og heilsurækt og var að vinna um helgina. Svo var djamm hjá okkur í akademíunni, þetta átti að vera eitthvað voðavoða fara í lónið , borða og djamm í keflavíkinni en jújú fórum í lónið en við vorum fjögur sem mættum þangað(ég,Gunni,Sóley og Jonni) jæja svo var farið til Sóleyjar þar sem við vorum 12 mætt með systir hennar Sóleyjar og horfðum á Idolið , já þetta var frekar rólegt Idol party en við vorum 5 að drekka þar til Gulli kom í partýið.  Svo var kíkt niður í bæ og þetta var bara fínt djamm....ég man alveg eftir mér sem ég er mjög sátt með :D:D:DÞannig það var nóg að gera þá en núna er ég ekkert mikið að gera.  Ég mun ekki nenna læra mikið um páskana fyrir utan það að ég þarf að skila vinnubók fyrsta dag eftir páska, reyndar er bara einn kennsludagur eftir páska og svo byrja prófin 8|8| :( Fór að dæma á mánudaginn í áhaldafimleikum á móti í björkunum og gekk bara vel, var ein að dæma á slá :o og ég er ekki dómari, þurfti bara lesa mig til ;) en er svo að fara dæma aftur í dag :P eða kl 6 og það aftur í björkunum í trompfimleikum.  Annars er lítið planað um páskana ekkert að fara út eins og sumir(Heiða systir að fara út a morgun ti Dublin).  Ætla skella mér á skauta á föstudaginn :D eftir mikið suð í sumum.

Gleðilega Páska

Kelan


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 13:30:59 / rakelgudn

Prófin nálgast

jæja langt síðan ég bloggaði síðast...lítið að frétta nema það hvað skólinn er að klárast og ég er ekki alveg að átta mig á því:|:|. Páskafrí 12-18 apríl og svo einn kennsludagur eða svo eftir páska. og svo læra fyrir ´próf ,úffff!!!! Um helgina var djamm hjá okkur í akademíunni þar sem Telma var með partý í Reykjavík og svo var farið niður í bæ og var tekið vel á því og skemmt sér bara konunglega :D:D.  Það var farið í Jóga í gær með skólanum hjá honum Guðjóni Bergman og það var tær snilld :D ég sofnaði næstum því í slökuninni.  Þarf á þessu að halda þar sem ég er með vöðvabólgu 8| já væri ekkert á móti því að kíkja í lónið á fimmtudaginn ;) það er eitthvað verið að hugsa um eitthvað slútt með Akademíunni , eihverskonar árshátið :haha:.

Jæja nóg í bili

Kelan


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 13:58:02 / rakelgudn

Veikindi!!!

jæja ég er búin að vera rúmliggjandi frá því í gær en fór samt að þjálfa í gær.  Það var það erfiðasta sem ég hef gert lengi !!! shit hélt það mundi líða yfir mig þegar ég kom heim í gær.  Ég er að kafna úr kvefi og því fylgir eyrnabólga,feit vöðvabólga og einhver hiti.  Verst að ég er með hópafjör fyrir hópinn minn í dag kl 17:00 8|8| fer nú ekki að fresta því aftur en ég frestaði því síðasta fimmtudag vegna mikilla forfalla.  Ég ætlaði svo að þjálfa fyrir Róbert  á morgun alveg frá korter í 3 til hálf 8 :o efast um ég hafi heilsu í það :( .  eins gott eg fari að jafna mig því systir mín er að fermast á sunnudaginn og nóg að gera í sambandi við það og svo á ég víst að vinna á laugardaginn!!! já þess vegna reyni ég eins og ég get að taka því rólega og gera ekki meira en ég þarf. 

Rakel


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 13:56:20 / rakelgudn

Helgin 18-19 Mars!!

á laugardeginum var innanfélagsmót fimleikadeildar Keflavíkur.  Ég mætti þarna kl hálf 8 og var til eitthvað rúmmlega hálf 7 um kvöldið.  Var með stelpurnar mínar,aðstoðar þjálfari og endaði svo á því að vera dæma, já ég neita því ekki að ég var komin með höfuðverk og stóð varla í fæturnar eftir þennan dag.  Þorgerður vann áhaldafimleikana og Elísa trompið , þær áttu frábært mót!!! :D:D.  En ég var ekki hætt þennan dag þó ég hefði vilja fara heim að sofa heldur var skellt sér á djammið í Reykjavík, þar sem við byrjuðum á því að fara í afmæli í hafnarfirði og svo í innflutningspartý í miðbænum.  Svo kíkti Ég á Hressó eða Gunni Bekkjarfélagi sótti mig og við kíktum á hressó :lol::lol: já e´g neita því ekki að ég hafi verið frekar mikið full!!! Ég mundi ekkert eftir því hverja ég hitti eða hvernig ég fór heim. En ég og Gulli fórum með Taxa til Keflavíkur.....og ég ældi víst í taxan 8|8| og hann þurfti líka að stoppa á brautinni til að ég gæti ælt 8|8|8|.  ég man ekki meir en ég vakna upp í rúmi algjörlega ónýt og var ónýt allan sunnudaginn!!!8|8| Svo gleymdi ég veskinu mínu á hressó en vissi reyndar ekkert hvar ég gleymdi því sem var ekki gott því lyklarnir af bílnum voru þar og varalyklarnir voru læstir inn í bílnum:o:o.  Þannig að pabbi skuttlaði okkur að ná í veskið á hressó :D og náðum við svo í bílinn í hafnarfirði hjá Stebba. Ekki var mikið gert á sunnudeginum en að liggja í þynnku!!!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 17:44:46 / rakelgudn

Þreyttur dagur!

Sælar!!!

Það var vinnuhelgi hjá mér þessa helgina.  Fékk frí á lau morgninum og vegna þess að það var verið að færa sportbúðina 8| aftur!! jæja hefði semsagt alveg geta farið á árshátið HR a föstudagskvöldið eða ekki var vinnan að stoppa mig.  JÆJA ný vika byrjar rólega eina sem ég er búin að gera í dag er að fara í skólan kl hálf 10 og frí eftir hádegi og fór að þjálfa kl 3-4! er ekki alveg í bloggstuði svo ég kveð að sinni

kelan


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 18:07:07 / rakelgudn

Helgin...

Jæja það var farið upp í bústað um helgina og skemmt sér bara helvíti vel.  Það var drukkið nokkuð mikið miðað við hvað ég var að búast við.  Þannig að það var nóg að ganga frá á sunnudeginum. Geggt veður í Borgarnesi :D um helgina eða kannski 3 stiga hiti, heheh en það var samt logn og fínt veður bara.  Fórum í sund á leiðinni heim ég og Gulli í Borgarnesi.  Stoppuðum svo á kennaranum í hafnarfirði sem er miklu betri heldur en hér í keflavík. 

Fór í world class áðan og hitti Jón Arnar frjálsíþróttamann þar sem hann var að fara með okkur í gegnum hraðbrautina í world class og fleiri sniðugar æfingar þar sem við reyndum á okkur.  Á morgun er það svo skautar :D hlakka bara til... þarf líka ekki að fara þjálfa kl 3 heldur kl 5 þannig að þetta verður ekkert stress eins og í dag.  Kom á mínutunni 3 enda keyrði ég eins og brjálæðingur á brautinni miðað við aðstæður, klikkuð rigning og rok.

Nóg í bili

Kelan


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 22:17:31 / rakelgudn

Öskudagur

Jæja ég er orðin nett biluð á þessum Reykjavíkurferðum, afhverju jú í fyrsta lagi því ég þarf oftast að fara þjálfa kl 3!!! og þarf því að fara ein á bíl og fara örlítið fyrr til að meika það, svo jú allar löggurnar á brautinni þannig í dag ákvað ég að halda mig á löglegum hraða sem var eins gott því það voru þrjár löggur á brautinni í dag á leiðinni.  Svo mæti ég að fara þjálfa og það mætir ein stelpa á æfingu ÍRIS á hrós skilið að mæta, en þær vildu endilega hafa æfingu og ætluðu allar að mæta í búningum en svo hafa þær gleymt sér í skemmtuninni, sem ég skil svosem alveg vel.  Þar sem að ég er áttavilt í Reykjavík og nágrenni þá hata ég að keyra ein þar, orðin græn af þessu.  Í gær voru Jón Páll og Aðalbjörg svo elskuleg að ´bjóðast til að keyra á undan mér svo ég kæmi nú á réttum tíma og á réttan stað ;);) en leið okkar var heitið í Fífuna í Kópavoginum , hvað er fífan sagði ég?? vá ekki hugmynd en jæja fór þangað sjálf í dag í bandýið, helvíti gaman í bandýinu, góð útrás :D.  Eftir bandýið í gær ætluðum ég og Dagný að hittast í HR og byrja á fyrirlestrinum sem við höldum á morgun 8|8| en nei haldiði ekki að Kelan hafi týnst eitthvað og endað hjá Ikea og Rúmfatalagernum já það er hægt að hlægja af þessu en ég er nett pirruð á þessu :evil::evil:og farin að missa t´runa á mer að rata í bæjnum 8|8|.....

En næsta Reykjavíkurferð er ekki fyrr en á mánudaginn í world Class , ætti nú að rata þangað núna þar sem ég týndist síðast 8|8| þarf þá enn og aftur að fara ein á bíl nema ég fari að breyta æfingatímunum hjá stelpunum sem er frekar slæmt því innanfélagsmótið er 18.mars og við erum að fara byrja á mánudaginn að æfa fyrir það og þá mun vera léleg mæting ef ég rugla skipulagi dagsins hjá þeim....þannig að ég verð bara halda áfram að röfla...íshokkí´í Reykjavíkinni næstu tvær vikur 8|8|8| gaman á skautum en ekki að fara í Reykjavík!!!!

Sorry allt röflið er hætt í bili

frú pirruð!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 18:12:29 / rakelgudn

Bolludagur!!

JÆja þá er ný vika byrjuð og alveg nóg að gera. Þarf að fara læra eitthvað, skila vinnubók á morgun, fyrirlestur á fim og fleira. En vá úfff það munaði litlu að ég hefiði verið tekin af löggunni á brautinni áðan. Ég fór í tíma í world Class kl 13:00. Ég var ekki alveg að finna staðinn svo ég byrjaði á því að mæta seint ásamt fleirum reyndar en staðurinn er svo stór að við þurftum að leita af þeim þarna, þar var talað við okkur um staðinn og fleira og svo fórum við í stuttan tröpputíma. Átti svo að vera mætta að þjálfa kl 15:00:!::!: tíminn var til 14:35 svo að ég þurfti að fara fyrr, gleymdi mér aðeins í tímanum og fór kl 14:30 svo ég hafði ekki mikinn ´tima til að komast heim. Þannig að auðvitað tók ég þetta á 140 8|8| þangað til að bíll blikkar mig og ég ákvað að hægja á mer og nokkrum sek seinna þá mæti ég löggunni, heppin ég. En ég náði ekki að mæta á réttum tíma, mætti 15:08 og stelpurnar skömmuðu mig aldeilis og voru allar tilbúnar í röð, ég gat sko ekkert afsakað mig þá sagði ein þú ert bara reina viðurkenna þig!!! bahahah æj krúttið... já þær vildu sko fá að hafa æfinguna lengur sem ég var bara ánægð með að heyra og leyfði þeim að vera til 16:15, gott að þeim finnist gaman í fimleikum :D enda margar mjög efnilegar þarna á ferð.

Þarf að fara læra eitthvað.....En hvað ertu búin að borða margar bollur í dag????ég er búin að borða hummm 4 í dag , en fékk mér reyndar líka í gær alveg nokkrar 8|8|

Nóg í bili

Kelan


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 22:21:44 / rakelgudn

Bústaður og læti...

Komiði Sæl!

 Sigurlaug og Stjáni

 Telma og Jón Páll

FLEIRI MYNDIR INN Á www.picturetrail.com/sumarbustad

Vikan var mjög fljót að liða, bandýið í skólanum var mjög gaman, miklu skemmtilegra heldur en glíman :D .  Það var farið upp í sumarbústað með fólkinu með mér í skólanum á fimmtudaginn og komum við heim í gær, þetta var all svaðaleg ferð og var bara mikið stuð, farið í sund um nóttina og skemmt sér til morguns.  Flestir mættu en það vantaði samt nokkra.  Stelpurnar voru með betri mætingu :). Sóley reddaði þessum bústað en hann var ekki með rennandi vatni í sem var ekki gott þar sem einn kúkaði í klósettið og það var ælt í vaskinn, svo var maður helvíti þyrstur morguninn eftir en það var náði í vatn í tunnu og bjargað málunum, ekta sumarbústaður , já svona á þetta að vera ;). Já það gerðist margt óvænt þarna sem ég ætla ekkert að vera ræða meira hér.  Þynnkan var svo að drepa mig á leiðinni heim sem var ekki gott....8|8|

Þessa helgina er ég að vinna og fer kl 05:30 í fyrramáli :|....Annars er allt búið að vera á fullu að baka fyrir fermingu hér á bæ.

Fariði vel með ykkur... :P:!:

Kelan


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 20:53:02 / rakelgudn

Mánudagur til mæðu

Kristján í prófinu

Helgin var frekar róleg, fór að þjálfa á laugardaginn og kíktum í Reykjavíkina á sunnudaginn.  Í dag var vettfangsferð á landspítalan í Fossvoginum og þar var tekið þolpróf þar sem Kristján var fórnarlambið :lol:;) neinei ekkert fórnarlamb, hann stóð sig mjög vel og bætti víst eitthvað met þarna á meðan við horfðum á hann hjóla með fullt af snúrum á sér og grímu og svitnandi eins og hundur :P:P hehe...., svo fórum við líka á fyrirlestur með íþróttameiðslum en ég þurfti að drífa mig út kl 15:15 því ég var að fara þjálfa, þrátt fyrir að vera búin að seinka æfingunni. Á leiðinni heim voru auðvitað 3 löggur á brautinni bara því ég var að drífa mig en ég slapp við það að vera tekin , held ég hafi fundið það á mér að það væri þrjár þarna á tvöföldunni því þær gera þetta nokkuð oft :(:(.... Fór svo aðeins upp í Akademíu að lyfta....Þarf svo að fara æfa mig fyrir lífeðlisfræði próf sem er á miðvikudaginn 8|8|

Nóg í bili

Kelan


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8